Kynning — Vefforritun 1 2025
Vefforritun 1 — TÖL107G
Ólafur Sverrir Kjartansson, osk@hi.is
Hæ!
- Ólafur Sverrir Kjartansson, eða bara Óli
- Kennt vefforritun við HÍ síðan 2013
- Fikt á vefnum síðan 1997
- BSc í hugbúnaðarverkfræði frá HÍ 2007
Þið?
- Líklega fjölbreytt reynsla í hópnum!
- Flest að byrja ykkar vefforritunarvegferð
- Gerum ekki ráð fyrir reynslu og þekkingu á vefforritun
Námsefni á GitHub
- Allt efni sett inn á GitHub (vísun líka frá Canvas)
- https://github.com/vefforritun/vef1-2025
- Námsefni, kennsluáætlun, vikublöð, verkefni og fleira
Samskipti
- Tilkynningar sendar í gegnum Canvas og berast á HÍ netfang
- Líka hægt að fylgjast með á GitHub, YouTube og á Slack
Slack
- Slack er samskipta- og samstarfstól
- Svipað og Discord
- Skráning með
@hi.is netfangi á https://vefforritun.slack.com/
- Ekki krafa að nota!
- Notum rásina
#vef1-2025 til að ræða málin!
- Fyrirspurnir varðandi fyrirlestra og efni
- Aðstoð við verkefni
Af hverju GitHub og Slack?
- Flest öll samskipti í háskólanámi fara fram í gegnum tólin sem HÍ skaffar
- GitHub er mikið notað í atvinnulífinu, open source vinnu og jafnvel háskólastarfi
- Því fyrr sem þið kynnist því betra
- Slack mikið notað í atvinnulífinu
English
- This course is taught in Icelandic and all material is in Icelandic
- The final exam will be in both Icelandic and English if there is at least one request for it from a non-Icelandic speaker
- Let me know via slack or email if you’re having troubles and we’ll figure it out
Fyrirlestrar
- Mánudögum kl. 15:00–17:20
- Námsefni lagt fyrir a.m.k. viku áður
- Geri ráð fyrir að þið hafið farið yfir!
- Fyrirlestrar fara í dæmi, umræður, spurningar og allskonar!
- Stefni á að taka alla upp
- Þó lofa ég engu ef tæknin klikkar
- Sett inn á YouTube seinna um daginn, eða daginn eftir
Dæmatímar
- Engir dæmatímar í fyrstu viku
- Hópaskipting og upplýsingar um dæmatímakennara á Canvas
- Mun liggja fyrir í næstu viku
Verkefni
- Byggja á raunverulegum verkefnum úr atvinnulífinu
- Geta verið tímafrek en besta leiðin til að læra er að gera
- Klárað er betra en fullkomið
- 12 verkefni í heildina
- 10 smærri
- Tvö hópverkefni
Smærri verkefni
- Sett fyrir og kynnt í fyrirlestri á mánudögum
- Skilað fyrir lok (23:59) fimmtudags vikunni eftir
- Átta bestu (af 10) gilda 5% af lokaeinkunn hvert, samtals 40%
- Megið ræða saman um verkefni en skrifið ykkar eigin lausn
- Merkið ef þið fáið aðra utanaðkomandi aðstoð!
Hópverkefni
- Tvö stærri verkefni, gilda 10% hvort
- Verkefni unnin í hópum, 2-3 saman
- Hugbúnaðargerð er sjaldnast einstaklingsvinna
- Notum git og GitHub
- Sett fyrir
- Fyrra um miðjan september – skalanlegur vefur
- Seinna um miðjan október – skalanlegur vefur með JavaScript virkni
- Skilast ca. mánuði seinna
Verkefnaskil
- Verkefnum og einkunnum fyrir þau er skilað í gegnum Canvas
- Lesið leiðbeiningar fyrir hvert verkefni og skilið öllu því sem beðið er um
- Ef þið hafið athugasemdir við yfirferð og einkunn, byrjið á að senda þær beint á dæmatímakennara
- Ef þið finnið ekki lausn saman, heyrið í mér
Vinnuálag
- Áfanginn er 8 ECTS → ~200 klst. vinna í heildina
- Fyrir 14 vikur eru þetta um 14 klst á viku
- Ekki jafndreift; það er minna álag fyrstu vikur
- Álagspunktar í kringum vikur 6 og 11
- Mesta vinna í hópverkefnum
- Skipuleggið með tilliti til miðmisserisprófa í öðrum áföngum!
- Ekkert minna verkefni í viku 7 vegna þessa
| Partur |
% af einkunn |
Klst ca. |
| Fyrirlestrar og undirbúningur |
– |
50 |
| Minni verkefni |
40% |
80 |
| Hópverkefni |
20% |
40 |
| Prófaundirbúningur |
40% |
30 |
| Samtals |
100% |
200 |
Mállíkön
Miðmisserispróf
- Ekkert miðmisserispróf í áfanganum
Lokapróf
- Heimapróf á Inspera
- Engin hjálpargögn leyfð
- Gömul próf á Uglu
- Nánar seinna
Einkunn
- Verkefnahluti gildir 60%
- Lokapróf gildir 40%
- Ná verður bæði verkefnahluta og lokaprófi með lágmarkseinkunn 5
Mæting
- Engin skyldumæting
- Tæknilega hægt að taka áfangann í fjarnámi (án þess að skrá það þó þannig)
Námskeiðslýsing
- Grunnur í vefsmíði með áherslu á framenda
- HTML, CSS og JavaScript
- Staðlar, venjur, og það sem þarf til að útbúa góða vefi
- Hönnun, útlit, og að vinna með hönnunarskjöl
- Forritun í túlkaða forritunarmálinu JavaScript
- Tenging þess við vafra og tól tengdum því
- Verkefni felast í smíði vefja þar sem nýta skal það sem kennt er.
Hæfniviðmið
Nemendur sem ljúka þessu námskeiði geta:
- Þróað aðgengilega og merkingarfræðilega góða vefi með HTML
- Stýrt útliti vefs með CSS og kunnað skil á nýjustu straumum og stefnum í vefhönnun
- Skilið og skrifað forrit sem nýta JavaScript til að auðga vefi
- Skilið mun á framenda og bakenda og hvernig samskiptum þar á milli er háttað með HTTP
Kennsluáætlun
- Tvær vikur HTML
- Vefurinn og vefforritun, HTML
- Element, merkingarfræði, aðgengi og SEO
- Fjórar vikur CSS
- Syntax, specificity og cascade, box model
- Visual formatting, letur og texti, flexbox, grid
- Skalanlegir vefir og myndir, DevTools, grid
- Kvikun, hönnun, CSS í stærri verkefnum
- Ein–tvær vikur CLI og git
- NPM og tól til auðvelda okkur vinnu
- Git og GitHub
- Fimm vikur JavaScript
- Breytur, gagnatög, stýriskipanir
- Forritun á vef, DOM og atburðir, einingar
- Villumeðhöndlun, reglulegar segðir, fallaforritun
- Forritun á vef, samskipti og HTTP(S)
- Ein vika fyrir samantekt, upprifjun og upplýsingar fyrir lokapróf
Námsefni
- Nota efni í kennslubókum ásamt upptökum af fyrirlestrum frá 2021
- Það þarf ekki að lesa allt eða horfa á allt
- Mæli með að velja annað hvort fyrirlestraupptökur eða kennslubækur og leita síðan í hitt ef eitthvað óljóst
- Eyðum tímanum okkar saman frekar í að fara yfir dæmi, umræður og aðstoð
Kennslubækur
Vikublöð
Samanstanda af:
- Fyrirlestrar vikunnar með upptökum
- Námsefni, lesefni og lykilhugtök fyrir vikuna
- Dæmi tengd fyrirlestrum og lesefni
- „Verkefni vikunnar“
Lykilhugtök
- Tiltekin fyrir hverja viku á vikublaði
- Það sem þið ættuð að þekkja nokkuð vel eftir að hafa klárað viku
- Samansafn af lykilhugtökum og skilgreiningum í sér skjali
Eldri námskeið
Að leita sér hjálpar
- Ekkert að því að nýta vefinn þegar við erum föst
- Eyðum smá tíma í að reyna sjálf (mælt í klukkutímum ekki dögum)
- Leitum hjálpar á slack, í dæmatímum eða með því að tala við kennara
- Við erum öll að læra, líka ég
- Ef það er eitthvað sem mætti betur fara, látið mig vita
- Ef ég svara ekki strax er það því ég er að gleyma, minnið á ykkur
- Ég er hérna til að hjálpa ykkur!