Vefforritun 1 kennd haustið 2024
Hér má nálgast allt námsefni, dæmi og verkefni í áfanganum vefforritun 1 kenndan við HÍ haustið 2024.
Sjá yfirferð í fyrirlestri 1 um hvernig uppbygging á námskeiðinu og námsefni er.
Vika | Mánudagur | Viðfangsefni | Verkefni | Skil |
---|---|---|---|---|
1 | 19. ágúst | Kynning; inngangur; HTML; Netlify | Verkefni 1 | |
2 | 26. ágúst | Element; töflur, listar, form; að skrifa HTML; aðgengi & SEO | Verkefni 2 | Verkefni 1 |
3 | 2. september | CSS; box model; specificity og cascade; visual formatting; Letur & litir | Verkefni 3 | Verkefni 2 |
4 | 9. september | Flexbox; CSS virkni & stuðningur | Verkefni 4 | Verkefni 3 |
5 | 16. september | Skalanlegir vefir; hönnun; grid; kvikun | Verkefni 5 | Verkefni 4 |
6 | 23. september | Gestafyrirlestur um hönnun; node.js & npm; Sass & Stylelint; CSS í stærri verkefnum | Verkefni 6; Hópverkefni 1 | Verkefni 5 |
7 | 30. september | Git & GitHub; JavaScript: gildi, týpur, virkjar | Verkefni 6 | |
8 | 7. október | JavaScript: stýriskipanir, föll, fylki, hlutir | Verkefni 7 | |
9 | 14. október | Einingar; forritun á vef: DOM og atburðir | Verkefni 8 | Verkefni 7 |
10 | 21. október | Ósamstillt forritun; HTTP & form; ajax; eslint | Verkefni 9; Hópverkefni 2 | Verkefni 8; Hópverkefni 1 |
11 | 28. október | Tæki & tól; villumeðhöndlun; reglulegar segðir; fallaforritun | Verkefni 10 | Verkefni 9 |
12 | 4. nóvember | Hlutir; HTML5 og Web APIs; prófanir | Verkefni 10 | |
13 | 11. nóvember | Aðstoð, umræður; verkefnatími; upplýsingar um lokapróf | ||
14 | 18. nóvember | Samantekt og upprifjun; aðstoð; umræður | Hópverkefni 2 |
Nánar er fjallað um kennsluáætlun og námsefni í viku 1 og sýnd yfirferð á námsefni hér á GitHub.
Kennslualmanak háskólaárið 2024–2025.
Lokapróf verður Inspera heimapróf haldið þriðjudaginn 26. nóvember 2024 kl. 09:00–12:00.
Hvert vikublað samanstendur af:
Allt námsefni og lesefni er undir namsefni/
.
Hægt er að skoða dæmi á sér vef.
Samansafn af öllum lykilhugtökum, lýsingu á þeim og tengingar við vikur.
Fyrirlestrar eru haldnir 15:00-17:20 á mánudögum.
Námsefni vikunnar er sett inn í vikunni áður. Fyrirlestrarnir sjálfir fara í nánari yfirferð á mikilvægum atriðum úr fyrirlestrum, yfirferð á dæmum og umræður.
Upptökur af öllum fyrirlestrum á YouTube.
Öll dæmi eru undir viðeigandi námsefni í daemi/
möppu.
Til að sækja dæmi er hægt að sækja allt efni frá þessu GitHub repo með því að nota „download“ virkni eða opna vef útgáfu af dæmum þar sem hægt er að skoða þau beint í vafra.
Verkefni eru sett fyrir formlega í fyrirlestri á mánudegi (þau gætu verið gerð aðgengileg fyrr) og skal skila fyrir lok fimmtudags (seinasta lagi 23:59) vikunni eftir. Sýnilausn er gerð aðgengileg á föstudegi eftir skil.
Öll skil fara fram á Canvas.
Dæmatímar eru í vikum 2–14.
Sjá á Uglu og Canvas síðu námskeiðs.